Sæl öll,

Ég var ekki viss hvort ég ætti að birta þessi gögn hér því án efa eiga einhverjir eftir að misskilja það og væna mig um einhverja fordóma fyrir að koma þessu á framfæri. Þetta eru tölfræðiupplýsingar frá Bandaríkjunum um glæpi og þessi tölfræði er gefin út af Bandaríska dómsmálaráðuneytinu og annari opinberri bandarískri stofnun sem heitir “The Bureau of Justice Statistics”.

Sem fyrr segir má ætla að einhverjir misskilji þessa birtingu mína, viljandi eða óviljandi, og verður svo bara að vera. Ég get lítið gert að því ef fólk vill lifa í þröngsýni og fáfræði. Ég á þó von á að flestir hér taki þessu framtaki á jákvæðan hátt ef álit mitt á þeim er rétt.

Rétt er að taka það fram að ég ber enga ábyrgð á þessum tölum eða réttmæti þeirra og ætla ekki að fullyrða neitt um þær. Þær koma svona frá bandarískum stjórnvöldum.



“Þó svartir séu aðeins 12% af heildaríbúafjölda Bandaríkjanna þá fremja þeir 46% af öllum ofbeldisglæpum í landinu. Svartir fremja ennfremur 54% allra morða í Bandaríkjunum og 90% af öllum morðum á öðrum svörtum.

Svartir fremja ennfremur 43% af öllum hatursárásum, 66% allra vopnaðra rána, 27% allra nauðgana og 85% alls ofbeldis gegn öðrum kynþáttum, þá aðallega gegn hvítum (sbr. t.d. skýrsla bandaríska dómsmálaráðuneytisins frá 1993).

Svartur karlmaður í Bandaríkjunum er átta sinnum líklegri til að fremja morð en hvítur karlmaður. Svartir eru ennfremur miklu líklegri til að fremja ofbeldisglæpi gegn hvítum en hvítir gegn svörtum.

70% allra svartra barna í Bandaríkjunum eru fædd utan hjónabands. Barn sem er alið upp hjá einstæðu foreldri er sex sinnum líklegra til að alast upp í fátækt en barn sem alið er upp hjá tveim foreldrum, burtséð frá litarhætti. 70% allra unglingaglæpa eru framdir af strákum sem búa hjá einstæðum mæðrum sínum, burtséð frá kynþætti.

Leiðtogar svertingja hafa beint mjög spjótum sínum gegn byssuframleiðendum og viljað kenna þeim um að svertingjar drepi aðra svertingja með byssum. Á sama tíma hafa þeir krafist þess að dómar fyrir eiturlyfjasölu verði mildaðir verulega vegna þess að 90% allra eiturlyfjasala í Bandaríkjunum eru svertingjar. Fyrir um 20 árum kröfðust leiðtogar svertingja hins vegar hins gagnstæða, þ.e. að dómar fyrir eiturlyfjasölu yrðu þyngdir verulega, vegna þess að eiturlyfin væru að eyðileggja samfélög svartra. Þá voru eiturlyfjasalarnir líka að stóru leyti hvítir.

Þessar tölur eru allar byggðar á opinberum bandarískum gögnum, t.a.m. skýrslu The Bureau of Justice Statistics 1996 (gefin út í maí 1999), skýrslum bandaríska dómsmálaráðuneytisins (1993) o.fl.”



Hér spila þjóðfélagsaðstæður í Bandaríkjunum án efa mikið inn í, þá einkum mikil fátækt meðal svartra. Þetta eru engu að síður gríðarlega háar tölu í sumum tilfellum. Að lokum segi ég svo bara að áhugavert væri að vita um sambærilegar tölur um aðra kynþætti í BNA, t.d. hvíta.

<br><br>Með kveðju,

Hjörtur J.

Flokkur framfarasinna
<A HREF="http://www.framfarir.net“>www.framfarir.net</A>

”In the beginning of a change, the patriot is a scarce man, brave, hated and scorned. When his cause succeeds, however, the timid join him, for then it costs nothing to be a patriot." -Mark Twain
Með kveðju,