Hey, finnst þér leiðinlegt að lesa? Hefuru ekki tíma fyrir tímafrekar rannsóknir? Viltu samt vita allt og líta út fyrir að vera gáfaður?

Þá hef ég svarið fyrir þig!
Skyndisannleikur!
Á innan við tveim tímum geturu fundið og horft á heimildarmynd sem munu kenna þér allt um það hvernig heimurinn virkar! Allt sem þú þarft að gera er að fara á google.video, finna þér málefni við þitt hæfi og horfa. Þetta er svo auðvelt.
Slepptu við leiðinlegan lestur og tímafrekar heimildarleitir. Fáðu þér skyndisannleika í dag!
Þú verður gáfaðasti maðurinn á internetinu!

Veldu um óteljani málefni:

Aldur jarðar/sannleikurinn um þróunarkenninguna.
http://video.google.com/videoplay?docid=-8463129851563631666&q=kent+hovind&ei=bbccSKnAMqfijQKz9v3NAQ
Finndu út raunverulegan aldur jarðar og sýndu þessum þröngsýnu þróunarsinnum í tvo heimana!

Sannleikurinn um 9/11
http://video.google.com/videoplay?docid=7866929448192753501&q=loose+change&ei=FrgcSPrXJYfcjAK_5czSAQ
Vertu hluti af gáfaða minnihlutanum sem veit sannleikann!

Sannleikurinn um 9/11, Jesú OG bandaríska bankakerfið
http://video.google.com/videoplay?docid=-594683847743189197&q=zeitgeist&ei=RrgcSOm_J5bAigL90om-AQ
Skattar Bandaríkjamanna renna til illra gyðinga sem ætla sér að taka yfir heiminn. Þetta verður þér dagljóst þegar þú hefur séð þessa.

Sannleikurinn um HIV og AIDS
http://video.google.com/videoplay?docid=-6830231400057553023&q=aids&ei=jbgcSIDuHaWOiAKm8YDQAQ
Veldur HIV AIDS? Læknirinn minn segir það. En ég ætla ekki að treysta honum fyrr en ég hef séð heimildarmynd um málið.

…og margt, margt fleira.

Vertu skrefi á undan náunganum! Horfðu á netheimildarmyndir og svör við öllum leyndardómum heimsins munu birtast þér samstundis!
Ekki bíða! Horfðu!