Ég vil byrja á því að segja að þessi kenning er ekki komin frá mér heldur ömmu minni, ég á ekki beinlínis heima á þessu áhugamáli (ég er 12 kk), en ég held að þessi kenning eigi heima hérna.
Svo vil ég segja að ég er alls ekki að verja eða styðja Osama bin Laden með þessu ég hata hann og er algjörlega á móti honum og Talebönum.
Það getur verið að þessi grein hafi komið áður en ég held að ég hafi ekki sent hana þannig að hér kemur kenningin:

Getur verið að Osama hafi verið að reyna að frelsa landið sitt undan Talebönum? Kannski hugsaði hann að eina leiðin til þess að fá Bandaríkjamenn til að ráðast á þá væri að gera þá reiða og leita svo skjóls Talebana. Svo dettur mér líka í hug; hann varaði við þrem vikum áður, ekki satt? Kannski var hann að reyna að fá Bandaríkjamenn til að ráðast á hann (þá) án þess að hann þyrfti að drepa allt þetta fólk. Svo er hann alltaf að senda frá sér myndbönd, kannski er hann að reita þá meira til reiði og gera þá ákveðnari með þeim (myndböndunum). Ég er ekki að segja að frelsun Afghanistan sé virði alls þessa fólks, WTC og þannig, en kannski fannst honum það. Ég er heldur ekki að segja að hann væri eitthvað góður, hann drap samt allt þetta fólk og er hryðjuverkamaður, en hann væri samt betri, er það ekki?
—————————–