Vá Hvað mér finnst dómstóllinn hérna á Íslandi vera mjög ósanngjarn eins og til dæmis málið með stelpuna sem skellti hurð á kennarann og fékk hann slæmt höfuðhögg.Þetta mál var kært og þurfti móðir stelpunar að borga 10 MILLJÓNIR. Hinsvegar finnst mér þetta of harður dómur, en svo finnst mér bara skömm þegar konan fékk BARA 100 þúsund í skaðabætur,en í hennar máli, kærði hún mann sem barði hana svo illa að hún var í marga mánuði að jafna sig eftir þessu og það var ekkert smá sem hann barði hana. Þannig mér fannst pínu heimska að dæma mann að borga 100 þúsund fyrir að berja konu ILLA en móður borga kennara 10 milljónir fyrir að skella á hann, en ég vill ekki gera lítið úr kennara málinu.En samt finnst mér að konan sem var barinn ætti að fá meiri penninga og maðurinn sem barði hana ætti að hafa lengri fangelsisvist en hann var í 30 daga í fangelsinu.