Nú er kominn tími til alþjóðlegrar hernaðaríhlutunar í Ísrael/Palestínu. Þetta ástand getur ekki haldið svona áfram, enda er ljóst að það á aðeins eftir að versna. Ef Ísraelsmenn samþykkja ekki alþjóðlegar friðargæslusveitir á svæðinu verður að beita valdi. Ef þörf var á því í Kosovo 1999 er þörf á því í Palestínu 2002. Það er nokkuð ljóst að Bandaríkjamenn munu seint ljá máls á svona hugmyndum, en þeir verða þá sætta sig við að missa stuðning við stríð þeirra gegn hryðjuverkum. Það þýðir ekki að vera bara í stríði við suma hryðjuverkamenn. Það sem Ísraelsmenn gera þessa dagana á hernumdu svæðunum er ekkert annað en hryðjuverk. Þeir drepa fólk af handahófi, jafnt á heimilum sínum sem á víðavangi. Það er tilhneiging hjá fólki og fjölmiðlum að sætta sig frekar við hryðjuverk sem framin eru af hermönnum með dýr og fullkomin vopn heldur en skeggjuðum mönnum sem sprengja sjálfa sig í loft, en slíkur tvískinnungur verður að hætta. Morð er morð.