Sælinú

Eins og glöggir áhorfendur fréttatíma hér á landi hafa tekið eftir hefur verið í fréttum að ég(Vífill) hringdi í Hvíta húsið í leyninúmer. Síðan hefur ansi mörgum dottið í hug að blogga um þetta og segja frá því að þeir hafi þetta númer og sumir birt það. Ég vil bara taka það fram að ég er ekki með sama númer og þið hinir sem teljið ykkur hafa þetta númer, allavega ekki það sama og birt hefur verið á netinu. Ef að það númer er „gúglað“ kemur upp fullt af síðum með þessu númeri en ef að mitt númer er „gúglað“ kemur engin síða upp. Vildi bara taka þetta fram.

Góðar stundir.