Enn og aftur hefur grein sem ég hef skrifað verið hafnað hér, ég skrifaði þessa grein á Föstudaginn en nei nei ekki fær hún birtingu frekar en margar myndir eða greinar sem ég sendi inn. Á huga fá rasistar að vaða uppi á meðan reynt er að þagga niður í anti-rasistum eins og mér sem þurfa á þessum tímum þar sem rasismi er að aukast að auka áróðurinn fyrir fjölþjóðasamfélaginu mikið til þess að fá fólk á okkar band og einnig til þess að fræða það um hættur nasisma og rasisma í þjóðfélaginu því allir muna jú eftir því hvað gerðist í Þýskalandi á sínum tíma þegar flokkur sem þóttist elska landið sitt komst til valda.