Japis að fara á hausinn með skjá einum og það finnst mér rosalega slæmt. Japis er að mínu mati besta
tónlistarvöruverzlun sem þetta litla land hefur uppá að bjóða. Þar er hægt að fá allan andskotann, þá er ég ekki að
tala um nýja diskinn með Jennifer Lopez og gamla diskinn hennar Britney Spears. Þar er bezta úrvalið af jazz og
klassík sem ég hef komist í á þessu landi, þjónustan er frábær og bara allur pakkinn…
Helvítis kolkrabbinn að trölríða öllu hérna með JóniÓlafs skífunni og endalausri einokun.

Hvaða fíbblaskapur er í gangi að draga Japis niður með splæsurunum á skjánum sem borða gull í morgunmat og skilja
ekkert afhverju þeim gengur svona i