Það sorglega hefur gerst hérna á huganum að einn notandi hefur ákveðið að vera ekki lengur virkur þátt takandi í þeirri umræðu sem er hérna á huganum.

Slíkt á ekki að gerast!

Hérna á huganum eiga allir að segja það sem þeim finnst, sama hversu mikið aðrir eru á móti því.

Sjálfur er ég ekki saklaus og skrifaði að hann ætti að íhuga að minnka greinar sínar hérna á huganum. Ég hef tekið það tilbaka og tel það stangast á þeirri trú sem ég hef, að allir, alveg sama hvernig þeir eru og hversu mikið þeir segja frá því.

Það hafa ósköp margir verið á móti honum og kallað hann fífl og rasista, en meiri segja fífl og rasistar mega vera hérna. Hann hefur víkkað sjóndeildahringinn minn og efalaust líka ykkar.

Þótt að við erum á móti þér þá viljum við ekki að þú farir.

Ef þið viljið styða málstað minn, svarið þá þessum korki og setjið (notenda)nafnið ykkar sem titil.

Þeir sem eru á móti þessari undirskriftarsöfnun og vilja tjá sig um það eru vinsamlegast beðnir um að skrifa annan kork um það.

Takk fyrir…

–Krizzi–

Ps. Kannski var það þetta sem hann P4A var að sækjast eftir, að við komum grátbiðjandi til hans og heimtuðu að hann færi ekki. En hvað veit ég um það, ég er bara einhver helvítis MH-ingur!
N/A