Nú var ég vitni að mótmælum þessa hóps, á laugardaginn 14. júlí. Stór hópur gekk frá öskjuhlíð niður að snorrabraut í þeim tilgangi að mótmæla stóriðju á íslandi.

Verð ég að segja að þvílíka vitleysu og hálfvitagang hef ég ekki séð í langan tíma, að svona tiltæki sé ætlað til þess að fá fólk til umhugsunar um mál sem varða framtíð heillar þjóðar er svo barnalegat og heimskulegt að það hálfa væri nóg.

Þessi hópur gerði lítið annað en að dansa eins og vitleysingar með hárkollur og í trúðafötum og með trúðanef við ömurlegt þreytt europopp drekkandi bjór sem það hélt á meðan það rambaði skáhallt í átt að næstu ruslatunnu til að henda dósinni.

Þetta er að ég held vatn á myllu þeirra sem eru fylgjandi stóriðjuvæðingu íslands, þessi hópur gerði svo lítið úr málefninu sem slíku að mér var ofboðið, athyglissjúkt lið sem ögraði lögreglunni og öskraði svo “cameras, cameras!” þegar varnarlausir lögreglumenn reyndu að beina umferðinni framhjá þessum vitleysingum sem héldu að þeir væru að ná á filmu einhverju “lögregluofbeldi”.

Vá hvílíkir hálfvitar, ég skora á einhvern sem tók þátt í þessu að svara mér og koma með skýringu á því hversvegna þeir eru augljóslega að reyna að eyðileggja málstað þeirra sem vilja virkilega að þessi iðnaður fari burt. Þetta er gagnárás á raunveruleg mótmæli og til þess fallið að varpa slæmri ímynd á þá sem eru mótfallnir stóriðjuvæðingu íslands. Og þessi hópur “saving iceland” á ekkert skylt við mótmæli heldur er þetta heimska og fáráðsháttur sem ég hef ekki orðið vitni að hingað til, skömm að þessu.

<a href="http://photobucket.com" target="_blank"><img src="http://i64.photobucket.com/albums/h168/raven8tor/treason.jpg" border="0" alt="Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket"></a>