Sæl öll,

Burtséð frá nýja laginu hans Bubba Morthens “Nýbúinn” að öðru leyti þá get ég bara ekki gert að því að finnast myndbandið við lagið hrein móðgun við þjóðfánann okkar!

Í myndbandinu eru sýndar myndir af hakakrossum, einhverjum nasista- og fasistaleiðtogum og fylgifiskum slíkra manna vera að fremja ýmsa slæma hluti og alls kyns ógeðfelldu efni og síðan er þjóðfáninn okkar hafðu í bakgrunni við þetta? Er verið að slá fánanum okkar upp sem einhverjum neikvæðum hluti eins og einhverju rasistatákni???

Í 1. mgr, 12. gr. laga nr. 34/1944 (Lög um þjóðfána Ísledninga)segir orðrétt:

“Enginn má óvirða þjóðfánann, hvorki í orði né verki.”

Hvað er þetta annað en gróf óvirðing að slá fánanum okkar upp með einhverjum rasistamyndum og táknum???

Manni eiginlega blöskrar bara!
<br><br>Með kveðju,

Hjörtur J.

www.isbjorninn.cjb.net

“In the beginning of a change, the patriot is a scarce man, brave, hated and scorned. When his cause succeeds, however, the timid join him, for then it costs nothing to be a patriot.” -Mark Twain
Með kveðju,