Mér eiginlega hálfbrá þegar ég horfði á Kastljósið þegar Jónína var í viðtali. Helgi þjarmaði svoleiðis að henni að annað eins hef ég bara ekki séð fyrir utan þegar Jóhanna V. gjörsamlega réðst á Þórhall, þáverandi borgarstjóra.

Er einhver sammála mér að Helgi gekk aðeins of langt ?

en þar fyrir utan er Helgi fínn fjölmiðlamaður :)

Bætt við 6. maí 2007 - 00:55
hehe, verð aðeins að bakka með þetta, sá ekki byrjunina á viðtalinu ;) þannig ég biðst bara afsökunar, þetta kom bara þannig fyrir sjónar hjá mér að mér fannst hann bara vera ókurteis og hálf ruddalegur :) en allt í lagi, ég get alveg viðurkennt þegar ég hef skotið mig í fótinn :)
og eg er ekkert að segja að Helgi sé ekki afbragðs fjölmiðlamaður, því mér finnst hann skemmtilegur og beittur. En þetta kom bara svona til sjónar hjá mér.
can we leave the light on, boss ?