Þetta verður vart meira ruglandi fyrir okkar ungu kynslóðir þetta siðferði sem blaðurskjóður landsins eru að predika um þessar mundir varðandi ætlaða ráðstefnu einhverra smákláframleiðenda.
Vopnasalar?
George H.W Bush fékk heiðursviðtöku og aðgang að einni af betri Laxveiðiám Landsins.

Hann ER stórvægur vopnasali.

Eiturlyfja og Þrælasalar?

Hér erum við með Fjöldan allan af fyrirtækjum sem heita starfsmannaleigur en eru ekkert annað en þrælasölur sem versla með fólk frá póllandi, portúgal, Kína ofl…

Varðandi eiturlyfin spyr ég bara hvort ég sé ekki enn örugglega á íslandi þar sem sekt þarf að vera sönnuð áður en ummæli sem þessi eru viðhöfð, enda hægt að kæra fólk sem lætur svona bull frá sér. Eða er ég í guantanamo feminista á íslandi?

Ég er ekki á móti jafnrétti heldur hálfvitaskap, hræsni, fáfræði, lygum, lélegum fréttamönnum og Hysterískum leiðindapjásum.

Fariði frekar að tala um ANTM eða Nýjustu línuna í fetish undirfötum frá adam og evu. Þá a.m.k getur maður haldið áfram að hlæja að ykkur frekar en hrista hausinn yfir fordómum ykkar og vangetu til að svara einföldum spurningum.