Ég er ásamt örugglega meirihluta þjóðarinnar orðin brjálaður á lágum refsidómum á þessu annars frábæra landi.

Það kemur of oft fyrir að ég er kannski að fá mér að borða inní eldhúsi og það heyrist í útvarpinu að maður hafi misnotað einhvern fjölda af börnum kynferðislegar, og maður fær svo ógeðslegan hroll við að heyra þetta og enn verri þegar fréttin heldur áfram og sagt er að viðkomandi fari í 2 ár í fangelsi.

Eins og þessi maður núna sem misnotaði 5 ungar stelpur verður bara í fangelsi í eitt ár.
Svona menn ætti ekki að fá að sjá sólarljósið í a.m.k 30 ár, og jafnvel lengur.

Ég er búinn að fá andskotann nóg af þessu og vil að þessu verði breytt tafarlaust. Við búum í lýðræði og það er okkar ákvörðun hvernig eigi að refsa þeim sem brjóta á okkur.