Ég sendi inn kork hérna um daginn um þann ótrúlega hlut að Hollendingar eru að setja bann á búrkur íslamskra kvenna. En það sem ég fékk í svörunum var að þessar búrkur væru kúgun þessarra kvenna. Ég er komin með 5 ástæður fyrir því að hún sé það ekki

Hér eru þær

• Fyrst og fremst vilja þær að horft sé á þær sem manneskjur, en ekki hluti, því að þeim líður þannig án búrkunnar.
• Númer 2. Þeim líður andlega nær Allah
• Númer 3. Þeim finnst þær bera þá skyldu því að þetta er venjulegasti hlutur í heimi fyrir þær
• Númer 4. Til að bera virðingu fyrir eiginmönnum sínum
• Númer 5. Það er þeirra tíska. Ef maður hefur farið til Arabíu sér maður að konurnar þarna eru bara alveg venjulega klæddar, fyrir utan það að þær eru með oft mjög flotta slæðu fyrir andlitinu.

Og hana nú! Endilega segið mér að þetta sé vitlaust o.s.frv. :D