Hvað finnst ykkur um forsíðu Blaðsins á miðvikudaginn um að 12 útlendingar hafi verið kærðir núna í seinasta mánuði fyrir hrottalegar nauðganir, þar af 8 Pólverjar og 2 Litháar.

Að mínu mati er þetta ein afleiðing þess að fólki er leift óhindrað að komast inní landið.

Ég viðurkenni fúslega að 95% af öllum útlendingum hvort sem það eru Pólverjar eða Litháar eða hverjir sem eru, eru komnir hingað í góðum tilgangi og eru að gera ekkert nema gott fyrir landið. En á hinn boginn held ég að það væri betra fyrir Íslenskt samfélag ef við hleyptum færri útlendingum inní landið heldur en fleiri.

Það kemur til dæmis fram í Blaðinu að þessir útlendingar hafa verið valdar af öllum þeim nauðgunum í síðastliðnum mánuði en þær voru einhvað í kringum 6 talsins að því er mig minnir.

Ég vil svona að lokum, áður en ég verð út hrópaður rasisti, nasisti eða einhvað verra, að biðja ykkur að íhuga þetta gaumgæfilega og hugsa ykkur hvort þessum konum hefði nokkur tímann verið nauðgað ef þessum mönnum hefði verið hleypt inn í landið!

Útlendingar geta koma hingað til þess að starfa eða menntast en þegar þetta er byrjað að ganga út á nauðganir, dóp og aðra hrottelega glæpi verð ég einfaldlega að setja spurningamerki við stefnu stjórnvalda í innflytjendamálum.


P.S. ég veit auðvitað að það eru líka Íslendingar sem nauðga en það afsakar ekki að þessum útlendingum hafi verið hleypt inn í landið.

Bætt við 2. nóvember 2006 - 22:31
Hafði ekki Tekið eftir þessu http://www.hugi.is/deiglan/articles.php?page=view&contentId=4157739

og fann síðan smá heimildir

http://www.visir.is/apps/pbcs.dll/article?AID=/20061030/FRETTIR01/61030008/1091

http://www.visir.is/apps/pbcs.dll/article?AID=/20061031/FRETTIR01/110310059/1091

http://www.visir.is/apps/pbcs.dll/article?AID=/20061031/FRETTIR01/110310073/1091

http://www.visir.is/apps/pbcs.dll/article?AID=/20061030/FRETTIR01/61030072

http://www.visir.is/apps/pbcs.dll/article?AID=/20061030/FRETTIR01/110300039/1091