Ég veit ekki hvort þið eru komin með leið á þessu umræðuefni en ég ætlaði bara að deila með ykkur einn link hér í kjölfarið á þessari frétt vísir.is:
————————————————-
Var hann norskur?
Hið víðlesna vefrit The Register heldur því blákalt fram að Leifur Eiríksson hafi verið norskur. Þetta er tíundað í grein í ritinu þar sem verið er að klóra yfir þau mistök í vefverslun
The Register að telja Noreg ekki í Evrópu.

Í greininni er verið að svara fjölda Norðmanna sem hefur kvartað við The Register annarrar meðferðar á pöntunum þeirra en fólks í Evrópusambandsríkjunum. Friðþægingin virðist eiga að felast í birtingu ýmissa upplýsinga um Noreg, þar á meðal nafna nokkurra frægra Norðmanna. Þar er Leifur Eiríksson talinn upp.

Vilji íslenskir netverjar gera athugasemd við þessa fullyrðingu þá geturðu smellt hér til að senda höfundi greinarinnar póst.
——————————————————

Þessi hér er tildæmis að “reyna” að réttlæta það að segja Leif vera norskan, en að mínu mati mistekst rosalega og flækir sig í sínum fáranlegu flækjum.
http://www.mnc.net/norway/nationality.htm
Auðvita er ég líka orðin leiður á þessu, en ansk… maður lætur nú ekki alla vitleysu ganga lausa
Kveðja
Krosshol