Eins og flestir vita var Bubbi Mortheins að halda upp á 50 ára afmælið sitt með tónleikum sem fram fóru í laugardalshöll í gær (060606) og jújú tókust þeir með ágætum, hann hefði samt alveg mátt taka fleiri af sínum góðu lögum. En það sem mér fannst nú athyglisverðast var það þegar hann var að drulla yfir álver og virkjanir og söng eitthvað lag um virkjanir blabla… í þetta eyddi hann hellings tíma og svo næsta lag sem hann spilar á eftir þessari ræðu sinni er “aldrei fór ég suður”! Lag sem fjallar meðal annars um atvinnuna úti á landi, ádeila á það að lítið sé um atvinnutækifæri þar og allir eigi bara að flytja suður. Þarna fannst mér kallinn skjóta sig agalega í fótinn og hugsa ekki alveg um hvað hann sé að segja! Röflandu um það að við eigum að elska landið okkar… auðvitað getum við elskan landið okkar þó við færum smá fórnir sem leiða af sér gott. Ég ætla nú ekki að fara að tala um álver og virkjanir, en ég held að þetta sé akkurat eina lagið sem Bubbi hefði ekki átt að taka á eftir þessari ræðu sinni!