Flug 77 gat ekki hafa klesst á Pentagon þar sem við vitum það náttúrulega öll að þegar flugvél brotlendir þá skilur hún eftir sig brak…ALLTAF! Ég veit það reyndar ekki neitt, það bara hljómar nógu lógískt til að styrkja trú mína á því að Bush og félagar séu illir snillingar sem geta framið mannskæðar hryðjuverkaárásir á sitt eigið land og komist upp með það. (Þó svo að þeir hafi ekki einu sinni náð að halda Valerie Plame málinu leyndu…….né hlerunarhneykslinu. Kannski voru þeir of uppteknir við að skipuleggja hryðjuverkaárásir á Ísrael í samvinnu við Ísraelsstjórn). Kannski er ég bara fáfróð kunta sem ætti að lesa mig til áður en ég gleypi við svölum samsæriskenningum í anda X-files sem ég finn á netinu. Kannski ætti ég að hætta að hlusta á bólótta tölvunördið sem situr heima í kjallaranum hjá mömmu sinni, óskandi þess að hann væri Fox Mulder, setjandi saman þessar spennandi kenningar, og kannski ætti ég að byrja að taka eftir því að ekki einn einasti fræðimaður með viti styður samsæriskenningar pizzufésins. Eða ja, Charlie Sheen kannski.

Og já http://www.youtube.com/watch?v=dWpRGLrkIsw

Skilur ALLTAF eftir sig brak. yeeeah right, og þróunarkenningin er lygi sett fram af illum trúlausum vísindamönnum sem vilja grafa undan Guði.