Ha!
Ég er guðslifandi fegin að það er aðeins farið að slá á þessa rasisma/nasisma/þjóðernis/þjóðhreinsunar-umræðu. Ég held að stjórnendur huga séu greinilega búnir að sýna fram á að skoðanafrelsi ríki hérna, en það er BULL að láta þetta verða eilífðarvettvang skítkasts og rifrilda um nefnt mál. Það er nú einu sinni svo að menn hætta ekki að rífast um þetta þegar þeir eru byrjaðir og það er ALVEG kominn tími til að salta þessa umræðu í bili og leyfa öðrum málefnum að komast að. Það er meira í gangi á Íslandi í dag en rasismi.
Og hananú!