Gagnauga.net
Nýr flugvöllur er nú í smíðum fyrir ísraelska herinn á svæði Kúrda. Völlurinn er fjármagnaður af Bandaríkjunum og verður fljótlega kominn í gagnið. Þetta bætist ofan á önnur atriði sem benda sterklega til að Ísraelsríki undirbúi árás á Íran. Í síðustu viku prófaði ísraelski herinn nýja tegund meðaldrægra eldflauga sem geta borið kjarnorkuvopn. Smíði flauganna, sem kallast Arrow, er fjármögnuð af Bandaríkjunum og þessar flaugar munu ná í Íran. Um svipað leyti kynnti Ísrael nýja Dolphin kafbáta sína, en þeir voru að hluta gjöf frá Þýskalandi og síðasta embættisverk Gerhards Schröeders. Á blaðamannafundi s.l. fimmtudag höfðu bæði Ariel Sharon og Dan Halutz uppi ógnandi ummæli um Íran og gáfu í skyn að hernaðaraðgerðum yrði beitt gegn Íran.

http://www.aljazeera.com/me.asp?service_ID=10073