Jæja við vitum öll að Árni J. reyndi að svíkja út vörur og að hann laug um það en þurfum við endilega að velta okkur upp úr því?? Það er verið að vinna í málinu og hann fær örugglega að gjalda fyrir þetta sem hann auðvitað á að gera. En mér finnst þessi umræða vera farin út í öfgar, maðurinn er allt að því lagður í einelti. Ég er ekki að afsaka hann né það sem hann gerði en kommon það er búið að ráðast á húsið hans og spáðið í einu hann á líka fjölskyldu og það á að taka tillit til þess. Og eitt enn hann er örugglega ekki eini þingmaðurinn sem hefur gert svona og verður örugglega ekki sá síðasti, því miður.