Ég ætla að leyfa mér að birta hér í heili lagi grein af forsíðu moggans:

“Tyrkinn Etham Sahin varð fyrir því óláni að fá kú í höfuðið þegar hann var að tefla við vini sína á kaffihúsi í borginni Nevsehir í Tyrklandi, að sögn fjölmiðla í gær. Tyrkinn rotaðist við höggið og fótbrotnaði, auk þess sem sauma þurfti sjö spor á ennið.
Kýrin var á beit í brattri hlíð og fór upp á þak kaffihússins sem var byggt inn í hlíðina.
”Ég trúði því ekki þegar þeir sögðu mér að kýr hefði fallið á hausinn á manninum mínu,“ var haft eftir eiginkonu Sahins. ”Ég hélt þeir væru að grínast. Megi guð vernda okkur frá verri slysum.“
Kúnni varð ekki meint af fallinu. Ethem Shin er hér á sjúkrahúsi í Nevsehir.”
kv.