Ég ætla hér að skrifa stutta grein um Laugarvegin. Persónulega finnst mér þessi gata ekki fullnægandi, þá sérstaklega út af umferð, og lítilsháttar götulífi. Ef þið horfið á Strikið í Danmörku, þá sjáið þið allskonar hljómsveitir vera skemmta fólki á götunum og betla pening, ég sé ekkert athugavert við það, þarna eru engir bílar, fólk er labbandi og nýtur dagsins. En á Laugarveginum finnst mér alltaf soldið stress, bílar á götunum. Laugarvegurinn er nefnilega mjög falleg gata, þess vegna held ég að það væri meiri stemming ef það væri enginn umferð þarna, þetta væri bara göngugata. Ég alls ekki að segja að Laugarvegurinn sé léleg verslunargata. Ég er bara að segja að það ef umferðin væri ekki þá væri örugglega skemmtilegra andrúmsloft.