Mbl.is
Lögreglan í Borgarnesi lagði í fyrrakvöld hald á 10 grömm af hassi sem fundust á ökumanni bíls sem var á leið norður í land á föstudagskvöld. Maðurinn er um þrítugt. Honum var sleppt að lokinni yfirheyrslu.

Já alltaf jafn spennandi þessar fréttir. Það er næstum eins og þeir geri bara copy/paste reglulega. Allar þessar hass fréttir eru jafn leiðinlegar og óspennandi. Hversum er ekki sama að einhver var með 10 grömm af plöntu í bílnum sínum?

Þegar maður sér svona fréttir áttar maður sig á því að gúrkutíð er að skella á. Fellibylurinn Rita var greinilega ekki nógu öflugur til að slá út leiðindarfréttir sem þjóna þeim eina tilgangi að fylla út í pláss á vefsíðu.