hvaða skoðun hafið þið á málinu? flestallir ættu nú að hafa heyrt talað um þetta í fréttunum, enda langlengsta frétt sem ég hef augum litið í gegnum tíðina.
Finnst ykkur þetta brot á persónuvernd?
Hvaða skoðun hafið þið?
Mynduð þið vilja lenda í þessu?

Persónulega finnst mér þetta út í hött..sérstaklega þetta blað..þvílíkt og annað eins. Hef ekki opnað eitt Hér&Nú blað frá því það kom fyrst út og ætla sko ekki að fara að gera það, viljið þið í alvöru lesa svona sora?!
Þetta er þjóðinni til skammar, börnum og öllum..óréttlátt - þetta kemur okkur ekkert við!
Það sást að fólk er virkilega sárt og líður illa. Fólk ætti að skammast sín, sérstaklega þeir sem birtu þetta!!
Virðingarleysi