Ég sá grein í morgunblaðinu (man ekki alveg hvað hún heitir) en það var um konur í útlöndum. Það er fullt af konum sem mega ekki láta sjá neitt hold á sér því þá er það vanvirðing við karlmennina. En ég sá þessa mynd í mogganum og mér fannst það full langt gengið. Þær voru í svona “sloppi” frá hvirfli til ilja og það var meira að segja hulin augun. Það var bara eitthvað svona smá net sem þær gátu séð út um. Og þetta átti að vera alveg heví vítt svo það myndi alls ekki sjást línurnar. Ég verð bara svo reið hvering það er komið fram við þessar konur. Og svo meiga hjón ekki tala saman.. halló!!! Hvernig er það þegar þau eru að hafa samfarir? Ég bara spyr!!!
tara83