Mér hefur alltaf þótt Gunnar í krossinum skemmtilegt fyrirbæri vegna þess að það er alltaf hægt að hlæja af honum vegna þess að það er nánast
ómögulegt fyrir meirihluta þessarar þjóðar að taka þennan mann alvarlega. Nema hvað ég ákvað að senda honum bréf á krossinn.is og sjá hverju hann svaraði. Náttúrulega eins sannur guðsmaður þá er honum einum lagið að níðast á hommum og lesbíum vegna þess að gyðingar sem sömdu Biblíuna fyrir 2000 árum voru ósáttir við samkynheigð.

En bréfið sem ég sendi honum hljóðar svona

Kristin trú var ekki einungis í fyrstu háð kraftaverkum heldur enn þá þann dag í dag er ómögulegt fyrir fyrir skynsama manneskju að játast henni nema fyrir kraftaverk (David Hume).
Þannig kvað David Hume fyrir nokkrum öldum og satt
ef þetta reynist ekki rétt hjá honum. Þar ég telst nú fermdur og kristinn í orði kveðnu get ég ekki verið sammála Biblíunni þar sem mér hlotnast sá heiður í háskólanum að kynnast vísindum og heimspeki sem vísa ekki í helgiathafnir,kennivald eða undirgefni til að færa rök fyrir máli sínu.
Og þar sem ég er ekki hommi eða kynvillingur þá tel ég það fráleitt að fordæma þetta fólk út frá Biblíunni. Ef Guð er til þá held ég að hann hafi meiri áhyggjur af hungri og stríði í heiminum en hvort að því samkynheigðt fólk fái að njóta sín eins og það er.


Svarið sem ég fékk frá honum var:

æ.æ.

Hann gat nú svarað þessu nema í tveimur orðum því að honum er svo mikið í mun að þjóna guði og fá peninga út úr fólki enda er þetta sölumaður af guðsnáð. Ef ég ætti að velja á mill þess að vera klámmyndaleikari eða safnaðarbarn Gunnars þá myndi ég frekar vilja vera klámmynda leikari vegna þess að kynlíf er gott heldur en að hlusta á þetta ofsatrúarþvaður.