Ég skil ekki eitt og það er með stöðina Omega, hún á vera þessi stöð sem Omega menn segja hinn heilagi sannleikur hvað maður á að trúa á!
Ok gott og vel, fólk má trúa á Jesú og lifa í sátt með það, nema það er orðið slæmt þegar menn eins og Eirikur og samstarfsfélagar hans eru byrjaðir að betla peninga og segja að fólk eigi að gefa pening til rásarinnar ef þeim langi að líða vel. Ég held að margir andlega veikir einstaklingar hafi farið illa út af þessu og líka fólk sem sér ekki sólina fyrir Guði.
Síðan er ekki nóg að þessir menn eru svona siðblindir, þá eru þetta hreinir múslimahatarar, þegar þeim gefst kostur að tala um múslima þá verða orðin ekki falleg, síðan hafa þeir líka þátt sem heitir Ísrael í dag sem þeir gefa ítarlega til kynna hversu kynþáttafordómarar þeir eru! “síðan er verið að níðast á Bobby Fischer að hann sé gyðingahatari á meðan að heil sjónvarpsstöð sem gerir ekki annað að rakka múslima”
Það væri gaman að fá skoðanir fólks á þessari stöð og sérstaklega sögur af fólki sem hafa lent illa í þessum mönnum