Ég var að labba heim til mín í dag og var með fossandi blóðnasir. Ég s.s. hafði fengið hnéð á mér í andlitið en ég nenni ekki að segja hvernig það gerðist. En ég var að minnsta kosti ALLUR í blóði blóð útum allt andlitið á mér og á fötunum mínum og bara útum allt bókstaflega. U.þ.b. 7 bílar keyrðu framhjá mér, allir sáu framan í mig en enginn þeirra stoppar. Þetta fannst mér að sjálfsögðu lélegt því það hefði verið gott að komast fyrr heim. Þetta var farið að frjósa og storkna og var alltaf að vona að einhver myndi stoppa. En það gerði það enginn.