Þá er það komið upp úr kafinu hversvegna Bobby Fischer hefur verið haldið svo lengi í þessum hálfgerðu fangabúðum og nú síðast settur í einangrum um leið og íslendingar reyna að rétta fram hjálparhönd og eitt lítið vegabréf frá litlu landi.
Allt sem á undan hefur gengið virðist soðið saman af yfirvöldum í japan svo bandarískum yfirvöldum gefist tóm til að safna saman eins miklum skít á Fischer og hægt er til að heimta hann framseldan og henda á bak við lás og slá í ammrísku fangelsi.
Allt er þetta samkvæmt frétt á Mbl.is sem skýrir frá þessu svart á hvítu.
Nú hélt maður að rassasleikiháttur Íslenskra stjórnvalda væri óhóflegur en japanir sleikja enn meira með áfergju afturendann á Sámi frænda og biðja um ábót.
—–