Nýr leiðtogi Palestínumanna hefur samþykkt aftökur nokkura af löndum sínum en 51 Palestínumaður eru á dauðadeild hjá “yfirstjórn”(soldið erfitt að átta sig á hver er við stjórn þarna) Palestínu. Sumir þessara manna eru venjulegir morðingjar en aðrir eru þarna fyrir að hafa aðstoðað Ísraelsmenn við að hafa hendur í hári ætlaðra hryðjuverkamanna. Miskunnarleysi Palestínumanna gegn eigin fólki er athyglivert í samanburði við að Ísraelsmenn dæma hryðjuverkamenn Palestínumanna ekki til dauða, sem segir sitt um annað hugarfar.

Fréttastofur hér (auðvitað mjög yfirborðslegar í öllum alþjóðafréttum) fjalla ekki um þetta frekar en aðrar í Evrópu, líkega til að móðga ekki “innflytjendur” eða e.h. álíka.