Frétt frá morgunblaðinu 31.Janúar

http://mbl.is/mm/frettir/erlent/frett.html?nid=1123028

Tíu ára gömul stúlka skotin til bana á Gaza

Ísraelskar hersveitir skutu tíu ára gamla palestínska stúlku til bana í bænum Rafah á Gaza-svæðinu í dag, að sögn palestínskra starfsmanna á spítala svæðisins. Átti atburðurinn sér stað í skóla stúlkunnar sem Sameinuðu þjóðirnar starfrækja.

Stúlkan, Nuran Dib, dó samstundis eftir að hafa verið skotin í höfuðið. Önnur stúlka, sjö ára gömul, var skotin í höndina. Talsmaður ísraelska hersins segir að verið sé að rannsaka málið.

Að eitthvað svona skuli gerist í grundskóla.