Kjörstjórn í Írak segir kjörsókn hafa verið 72% og að aðeins 36 hafi fallið í árásum í dag.

Þetta eru frábærar fréttir að mínu mati. Ef þetta hefði farið á versta veg þá hefðu hundruðir fallið og enginn þorað að kjósa. Ég er mjög ánægður með að Írakar séu loksins búnir að taka sitt fyrsta skref í átt að alvöru lýðræði. Ég vil óska öllum Írökum til hamingju með þennan frábæra dag í sögu Íraks.