Á vef Morgunblaðsins stendur:

Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, sagði í ræðu sem hann hélt í dag
í tilefni þess að 60 ár eru liðin frá því að bandamenn náðu Auschwitz-fanga-
búðum nasista á sitt vald, að heimsbyggðin hafi „ekki lyft litla fingri“ til
að stöðvar helförina…


Maðurinn er greinilega eitthvað vitlaus. Í tilefni þess að 60 ár eru liðin
frá því að bandamenn náðu Auschwitz-fangabúðum nasista á sitt vald,
segir Sharon að enginn hafi gert neitt! Ég skil þetta hreinlega ekki.

Einnig stendur:

Sharon sagði að af helförinni hefðu gyðingar lært þá lexíu að þeir geti ekki
treyst á neinn nema sjálfa sig…


og fjárstreymi frá Bandaríkjunum, hehe.