Ég legg til að þið spilið öll leikinn Deus Ex. Þar fær maður að velja um það að ganga í lið með Illuminati, sem er leynileg samtök. Sameinast gervigreind og stjórna heiminum sjálfum eða koma valdi til fólksins. Þarna er semsagt hægt að velja um Kapítalisma, einveldi og anarkisma. En eins og allir vita virkar ekkert að þessu.

Þarna er heimurinn endurbyggður eftir hamfarir, en þetta er eitthvað sem við þurfum að læra af. Náttúruhamfarirnar í Asíu eru byrjunin á falli mannkynsins, við munum nánast öll deyja. Siðmenningin mun kollsteypast. Þetta er leið móðir náttúru til að refsa okkur fyrir misgjörðir okkar, við höfum nauðgað jörðinni og myrt hvort annað. Og nú er komið að skuldardögum. Ég ætla að byggja upp nýtt kerfi eftir fall heimsvaldanna, komið í lið með mér.

JCDenton