Ég trúi varla að það sé núna í “Ísland í dag” verið að hvetja fólk til þess að kæra handrukkara, þó að þeir séu að hóta að láta það bitna á vinum og fjölskyldum.

Afsakið en lögreglan á Íslandi getur ekki gert RASSGAT til þess að stöðva þessa menn. Auðvitað eiga allir að reyna að sleppa við það að koma sér í þá stöðu að hafa handrukkara á eftir sér, en að kæra þá er eins og að bæta olíu á eldinn.