Nokkur heiðurshænsni
í hænsnakofanum búa
og haninn er þeirra höfuð
og hænurnar á hann trúa.

Þau lifðu í eining andans
og eftir hænsnavenjum
uns hænan ein tók upp á
svo undarlegum kenjum.

Að hoppa upp á hauginn
er hennar fasti vani
reigja sig og rembast
og reyna að vera hani.

Haninn bölvar í hljóði.
En hvað er um það að tala
þótt hænuréttinda hæna
heimti að fá að gala.

Verið þið sælar kerlingar.