Mér leiðist fólk nú til dags. Veit ekki hvort að þetta sé bara hér í þessum bæ eða hvort það sé allstaðar annarsstaðar. Samfélagið nú til dags gerir ekkert annað nema pirra mig. Það er eins og allir séu vélmenni, mettaðir af spilltum fjölmiðlum og ríkisstjórn sem að gerir ekkert nema að ljúga. Frekar vil ég loka mig inni að eilífu frekar en að hlusta á þetta fólk einu sinni enn. Ég gríp sjálfan mig stundum við að hugsa hvort að þetta sé allt lygi, allt bara til þess að gera okkur öllum til geðs. Fólk er að stofna til styrjalda vegna trúarbragða. Fólk er að drepa annað fólk vegna bókar. Hvort að sé trúverðugra Kóranninn eða Biblían. Eða hvort að það skipti ekki máli. Að það sé bara afsökun til þess að myrða fólk? Að fólk sé að myrða annað fólk bara til þess að myrða það? Í heiminum í dag þá er það alveg skiljanlegt. Mannfólkið í dag hefur sjálfseyðingarhvöt. Og á þetta eftir að eyðileggja heiminn. Ég veit ekki hvort að ég sé í afneitun og vilji þessvegna loka mig frá þessu öllu. Eða hvort að ég viti að þetta eigi eftir að gerast en vilji ekki vita hvenær?
Blehhh