Hvað er að ské með þjóðina í dag, allt vitlaust útaf öllum þessum DC++ málum og svo komin ný lög varðandi Reykjavíkurhöfn, til að tryggja það að það verði ekki gerð hryðjuverkaáras á skip þar, hvaða manni mundi detta það í hug að gera hryðjuverkaárás á Íslandi ?

Um daginn las ég grein á huga, um unglinga nú til dags, að allar stelpur verða að ganga í diesel buxum, ganga í g-streng og hlusta á Britney.

Hér er mitt svar, Þú þarft ekki að ganga í diesel buxum, ég þekki margar stelpur sem eiga ekki diesel buxur, ekki eru þær “ekki cool” eða neitt þannig.
Vertu sjálfstæð, ekki vera eins og allir aðrir, nota bara g-streng ef þú vilt það, ekki afþví að vinir þínir gera það.
Og svo unglingastelpur hlusta á Britney, það er bara rugl..
Flestar stelpur, sem ég þekki, hlusta ekki á Britney, frekar hlusta þær á rapp, eða eitthvað svona popp eitthvað.
Unglingar ný til dags eru að breytast, þeir eru ekki eins og þeir voru fyrir nokkrum árum “Britney er best!!!”.
Og allir strákar hlustandi á Back street boys eða Nsync, það er langt síðan það var.
Núna eru unglingar meira hlustandi á rokk eða rapp, ekki britney eða eitthvað þannig.

Hvað er málið með fólk sem kaupir 15 þúsund króna buxur, bara afþví að vinir þeirra gera það.
Mér mundi ekki detta það til hugar að kaupa einhverjar buxur á 15 þúsund, þótt vinir mínir mundu gera það.
Og ef þú endilega vilt vera eins og allir aðrir, og ganga í diesel buxum, keyptu bara ódýrar buxur
og reddaðu þér diesel merki einhverstaðar, og saumaðu á buxurnar.

Vildi bara tjá mig um Ísland.. í dag