Ég mæli með því að þið skoðið símreikningana ykkar áður en þið borgið því að ég hef oftar en ekki lent í því að vera borga 425.- opnunargjald þegar símanum hjá mér var ekki einusinni lokað!
Svo var ég að taka eftir því í ofanálag að ég er LÍKA að borga 425.- opnunargjald á gsm-númer sem ég á, en hef beðið símann um að opna EKKI. Þarna er bara 1000kall sem ég er að GEFA.

Fólk, athugið þetta áður en þið greiðið og kvartið yfir þessu, þetta *blót* fyrirtæki hefur sko ekki gott af svona “styrkjum” frá fólki sem veit ekki að það er að gefa peningana sína.
*meira blót*
Ein pirruð og blönk.