Jæja! Ég var eitthvað aðeins að tékka á mbl.is og þar sá ég
grein sem gerði mig svo virkilega hissa og reiða! Þetta er
greinin:

,,Hæstiréttur staðfesti í dag dóm héraðsdóms Reykjavíkur yfir
karlmanni sem dæmdur var í 10 mánaða fangelsi fyrir
kynferðisbrot gegn tveimur stúlkum, fimm og sjö ára. Þá er
manninum gert að greiða hvorri stúlku 300.000 krónur í
miskabætur.

Annað brotið átti sér stað í bílskúr skammt frá heimili yngri
stúlkunnar. Strætisvagnabiðstöð var fyrir framan bílskúrinn
sem notaður var af manninum sem vinnuaðstaða. Mikið var af
börnum í kringum manninn og gaf hann þeim sælgæti og
peninga.

Kynferðisbrot mannsins gagnvart yngri stúlkunni voru þríþætt
og fólu meðal annars í sér káf innanklæða. Þá tók hann
myndir af kynfærum eldri stúlkunnar og fór með hana í bíltúr út
úr bænum þar sem hann gerðist brotlegur gagnvart henni.

Í dómnum kemur fram að maðurinn hafi tvisvar hlotið dóm og
tvisvar gengist undir sáttir, aðallega fyrir brot gegn áfengis- og
umferðarlögum. Þá segir að brot hans gegn stúlkunum
tveimur sé alvarlegt og beinist að mikilvægum hagsmunum.
Hann hafi notfært sér ungan aldur þeirra til þess að misnota
þær kynferðislega.

Maðurinn neitaði sök fyrir dómi en dómurum þótti vitnisburður
stúlknanna bæði skilmerkilegur og trúverðugur. Brotin voru
framin sumarið 2002 og árið 2000 eða 2001."

10 mánuðir!!??!! Hvað er fólk að hugsa!!?!?! Okay, þetta var
kannski ekki nauðgun en þetta mun samt eyðileggja líf
þessarra tveggja stúlkna og þær eru eftir að vera óöruggar
það sem eftir er lífsins og eiga þokkalega eftir að eiga erfitt
með að treysta fólki! Og hann fékk 10 mánuði og missir
600.000. útaf þessu!
Hvernig er hægt að láta fólk sem gerir svona lagað, og sleppa
svona auðveldlega!!??!!! Mér finnst að það eigi að fara að gera
eitthvað í þessu, maðurinn hefði að minnsta kosti átt að fá
mörg ár fyrir það sem hann gerði!! Það ÞARF að fara að breyta
þessu!

Bankaræningjar fá nokkur ár!! Ekki finnst mér peningar vera
meira virði en líf fólks! Hvað með ykkur?
Music.. my escape from reality.