Ég var svo óheppinn um helgina að lenda í rifrildi við tvo eða þrjá þjóðernissinna á skítastöðinni #iceland á ircinu. Þeir byrjuðu með einhverjum áróðri um að senda alla innflytjendur út úr landi án dóms og laga, og bara til þess eins að “halda landinu hreinu”. Ég ákvað því að demba mér ofan í umræðuna og byrja að “rökræða” aðeins við þessa svokölluðu “þjóðernissinna”.

Eftir smáþras og leiðindi gerðist dálítið sem ég hafði verið að búast við í byrjun, aðalkallinn HÆTTI umræðunni. Hann varð gersamlega orðlaus. Hinn hélt áfram að reyna að rökræða en honum tókst bara að snúa út úr með orðunum:

“Þeir hefðu bara ekki átt að koma hingað”

Þessir þjóðernissinnar eru hreint og beint vitleysingar. Segjast vera svo stórir og fínir, en þora ekki einusinni að stofna FLOKK! Anarkistarnir stofnuðu gáfulegri flokk en Félag Íslenskra Þjóðernissinna mun nokkurn tíma stofna.<br><br>Kv.
Willie

——————————

Nordom: Attention: Morte, I have a question. Do you have a destiny? A purpose?
Morte: Is Annah still wearing clothes?
Nordon: Affirmatory.
Morte: Then the answer is yes.