Vá… Hafa ekki allir lent í því að graut fúll strætóbílstjóri taki á móti manni á hversdagslegum degi… Ekki nóg með það að maður verður staks pirraður á agnaráðinu sem þeyr gefa manni þegar maður stígur upp í vagninn, þetta ljóta glott eins og þeir ætli að gera daginn óbærilegan… En nóg um það. Þegar bílstjórinn loks segir eitthvað, þá er það yfirleitt eitthvað eins og: ,,Helvítis krakka fífl“ eða ,,Gastu ekki drullast til að vera tilbúinn með skiptimyntina” svo líka eitt sígilt ef þú gleymir skiptimiðanum ,,NEI! þú færð ekki skiptimiða, þetta er bara þér að kenna að þú baðst ekki um hann fyrr"… Oftast hreyta þeyr þessu út úr sér þannig að kaffi andfýlan blasir við… En ég er ekki að skrifa um þetta að engri ástæðu. Svoleiðis var að ég var að keyra á Hafnarfjarðarveginum þegar þessi bandbrjálaði strætóbílstjóri kemur askvaðandi frá hægri akrein, svínar fyrir framan bílinn og var næstum búinn að klessa mig. Ekki nóg með það, næst brunar hann fram úr öllum bílunum fyrir framan mig og svínar eins og vitleisingur… En hann var ekki að horfa á skelfingar svipinn fólkinu í sjálfum strætónum, neiii…!!! Fólk sem er að borga kannski það litla sem það á af vasapeninginn, enda er það bara helvíti dýrt að fara í strætó að mínu mati… En hvað er í gangi. Ætlar enginn að fara að gera neitt í þessu?

Hvað finnst ykkur???
Maja