Það er furðulegt hvernig Moggin er farinn að velja greinar til birtinar síðustu árin, það virðis tengjast því vandamáli þeirra að þykjast höfða til meðalmennskunnar meðan DV sér um það lægsta.

Einhver ruglukollur sem heitir Leifur Sveinsson (álíka ruglaður og Elías, félagi annars ruglukolls Ástþórs “friðarsinna”) er að tjá sig um sögu Ísraels og þáttöku Íslands ofl. Hann notar gamlar klisjur sem hafa verið notaðar í gegnum tíðina, t.d. af nasistum um hvað þeir eigi gott með að græða peninga, og þeir stjórni öllum hergagnaiðnaði í USA ofl. Ég hef aldrei skilið þetta, af hverju gyðingar máttu ekki eiga peninga og stunda viðskipti, arabar eru góðir í bisness líka en ég sé það aldrei notað á móti þeim.

Nema þessi vanviti telur ýmiss rök fyrir því að Ísrael skyldi ekki stofnað, t.d. að hinn fróði faðir hans hafi talið það boða íll að stofna gyðingum saman, og enn tekið fram að þeir væru svo góðir að græða peninga. (Ætli Bónusfeðgar séu gyðingar ?)

Og botninn tekur út þegar hann kemst að þeirri niðurstöðu að Sharon sé meiri djöfull en Adolf Eichmann og eigi að leiða fyrir aþjóðadómstól með Milosecvich og Saddam. Hann tekur ekki fram nein rök fyrir þessari niðurstöðu enda held ég að það sé bara hluti af geðveiki þessa manns. Hvað með Arafat, mann sem hefur stært sig af því að drepa fjölda manns, ekki bara Ísraela, aldrei minnst á hann.

En verst í þessu máli er hvað Moggin leggst lágt í að birta svona greinar þegar ekki er skortur á gyðingahatri, þar sem samasemmerki er sett milli allra gyðinga og Sharons. Sænskur gyðingur sem talar Íslensku og var hér í fyrra og ofbauð einhliða áróðurinn, m.a. í Mogganu ætlaði að bæra mótmælum í formi þýddrar greinar eftir fræga Ítalska blaðakonu Mariönnu Fallachi. Honum var neitað um þetta af Styrmi ritstjóra. Svona er nú komið fyrir Mogganum.