Ég er alveg að verða brjálaður um tilhugsunina við þetta ástand í heiminum.
Níðingurinn hann Bush gerir það sem hann vill til að halda því fram að Bandaríkin séu þjóð sem enginn nær að hælum.
Gerir árás á Írak og drepur mikið af saklausu fólki.
Hvað á þetta nú eftir að leiða til, fólk sem missir foreldra eða börn á eftir að espast upp til reiði og undir búa hriðjuverk sem verður kanski það mikilvægasta í lífi þeirra og það bara til að ná sinni hefnd á stórveldunum.
Það er staðreind að aldrei hefur liðið mánuður á milli sprenginga á arabaþjóðirnar frá bandaríkjamönnum eða bretum í heil 10 ár!!!
Ég held nú að það sé orðið heldur heitt í kolunum hjá íbúum íraks, írans og kanski fleirum.
Bush kallar þetta á sig sjálfur og hugsar ekki einu sinni útí afleiðingarnar.
Hann er nú þegar búinn að upplifa hriðjuverk á twin towers og það sem hann gerði til að svara því var að segja.
“I don't know who in this world dares to attack this nation”
og næsta dag var hann farinn að skipuleggja árásir á ýmsar þjóðir.
Twin towers verður ekki eina hriðjuverkið sem við munum sjá á þessari öld í bandaríkjunum.
Persónulega segi ég að ef að Bush mundi ráðast á mitt heittelskaða land og drepa vini og ættingja þá væri ég yfir mig reiður og ég bara veit ekki hvað ég mundi taka til bragðs!!!

Hvað finnst þér um þetta??