“Frændur” okkar Danir gerðu tilraun til að leggja á skatt af sama tagi og hann elsku Björn okkar lagði á en neyddust til að afnema hann vegna kröftugra mótmæla.
Þetta sannar að það er vel hægt að fá þessu bulli breytt ef við bara höfum nógu hátt og gefumst ekki upp.
Því miður þá hefur nútímamaðurinn álíka breytt athyglissvið og húsfluga og þessvegna er mjög hætt við að ef stjórnmálamenn standast mótmælin í smá tíma þá muni þeir komast upp með þetta því að fólk mun einfaldlega gleyma þessu. Þetta má ekki gerast því að þetta er það sem pólitíkusarnir eru að vonast eftir og þeir mega ekki komast upp með svona fáránlega skattlagningu.