Í guðanna bænum, hættiði að tala um þetta!!! Síðustu 10 greinarnar á Deiglunni eru um það sama!!! Þetta er sjúkt! Ég er víst líka á móti þessu, en sýnið þroska og svarið bara greinunum í staðinn fyrir að birta nýjar! Annars hljóta að vera alveg svakalegir tölvunörrar hérna, að vera svona á móti þessu gjaldi… mér finnst persónulega skemmtilegast að eiga upprunalega diskinn með forsíðu og öllu, og tónlistarmenn eiga það nú alveg skilið að fá peninginn!!! Það er mjög pirrandi ef einhver fjölfaldar hlut sem þú lagðir vinnu í. Einn í fjölskyldunni minni gaf út kennslubók í íslensku og fær ekkert því hún er ljósrituð. Eiga listamenn ekki rétt á því sama? En ég meina, hver fer að copy'a íslenska tónlist…