Nú er verið að selja geisladisk með nafninu Betri tímar. Þar leggja ýmsir tónlistarmenn sitt af mörkum fyrir gott málefni. Þar er nefnt til sögunnar Mæðrastyrksnefnd sem flestir þekkja. Síðan er diskurinn einnig til styrktar Fjölskylduþjónustu Íslands.
Ég vildi gjarnan vita hvaða fyrirbæri það er. Eru það vasar útgefandans? A.m.k. finnst ekkert við vefleit, í símaskrá eða annars staðar með þessu nafni.
Svari þeir sem vita!