sælt veri fólkið!
málefnið er klisjukennt en ég ætla samt ekki beint að fjalla um reykingarnar sjálfar. Þannig er mál með vexti að ég hef verið að taka strætó mikið undanfarið og þarf því að stoppa á þessum aðalstoppistöðvum bæjarins og þar eru unglingarnir/ungmennin að reykja. allt í lagi með það en sóðaskapurinn sem fylgir þeim!!!!! þau hrækja á gangstéttarnar og það er virkilega ógeðslegt. Hvað er fólk að reykja ef það finnst það svona vont á bragðið? finndu þér þá aðra sígarettutegund sem þér finnst betri eða slepptu því að reykja!